október 23, 2003
Fékk þetta sent í tölvupósti áðan:
Nú er verið að hanna viðvörunarmerki í Bandaríkjunum til að setja á áfengisflöskur. Ljósrit af því fór á flakk, svo hér
má sjá sýnishorn af því sem Bandaríkjamenn ætla hugsanlega að setja á allar vínflöskur:

- 1) Þú átt á hættu að dansa eins og fífl ef þú drekkur úr þessari flösku.
- 2) Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú segir sömu leiðinlegu söguna aftur og aftur,
þar til vini þína langar mest til að berja þig.
- 3) Neysla áfengis getur orðið til þess að þú "þegir þlutina þvona".
- 4) Neysla áfengis getur komið þeirri ranghugmynd inn hjá þér
að fyrrverandi elskhugar þrái að heyra í þér klukkan fjögur að morgni.
- 5) Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú hafir ekki hugmynd um
hvar nærbuxurnar þínar eru niðurkomnar.
- 6) Neysla áfengis getur orðið til þess að þegar þú opnar augun morguninn eftir
sjáirðu eitthvað sem vekur þér ótta (eitthvað, sem þú getur ómögulega munað hvað heitir).
- 7) Neysla áfengis getur valdið því að þú teljir þig miklu laglegri,
og gáfaðri en þú ert, sem getur leitt til óteljandi vandræða