júlí 18, 2004
Orkuleysi
Á föstudagskvöldið var mér boðið til vinkonu minnar á Egilsstöðum á einhvers konar pottakynningu. Þar ætlaði karlmaður nokkur að reyna að pranga pottum inn á sveitavarginn með því að elda í svona pottum einhverja dýrindis máltíð úr nánast ekki neinu.
Þegar við komum á staðinn á tilsettum tíma, reyndist umræddur karlmaður hafa svikist um að mæta. Í staðinn eldaði Nína þessa líka fínu fiskisúpu og við skemmtum okkur saman 7 konur - örugglega mun betur en með einhvern karl yfir okkur, eldandi í rándýrum pottum, sem aftur hefði orðið til þess að við hefðum annað hvort keypt einhverja potta sem okkur vantar alls ekki neitt eða setið eftir með samviskubit yfir að kaupa þá ekki.
Það var rafmagnslaust þegar ég kom á fætur í morgun og var rafmagnslaust í 3 tíma. Skömmu eftir hádegi fórum við síðan í Eyjólfsstaðaskóg, þar sem verið var að opna nýtt útivistarsvæði. Þegar við komum heim aftur var rafmagnslaust og kom straumurinn ekki á fyrr en klukkan átta í kvöld. Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem þetta gerist, og okkar ágæta RARIK, virðist ekki hafa miklar áhyggjur af þessu, þar sem aðeins er um sveitina að ræða.
Reikna með að þeir hefðu kallað út aðeins meiri mannskap ef um þéttbýlið hefði verið að ræða.
Svolítið miðaði áfram með bílaplanið í dag - rúmlega hálfnað - næsta skref er að fara og saga svona 5-600 kubba til viðbótar og halda svo áfram að púsla.