<$BlogRSDURL$>

desember 14, 2004

Rökrétt ferli. 

Ég fæ stundum að heyra það hérna heima hjá mér að ég sé að gera ALLT Í EINU. Það má vel vera, ég er oft með nokkur verkefni í gangi í einu. Hins vegar gekk ég eiginlega fram af sjálfri mér áðan, þegar það sem átti að vera einfalda aðgerðin að flytja dót úr herbergi bjarnarins fram í geymslu eða önnur herbergi hússins, varð til þess að ég þreif loftið og veggina í baðherberginu og tók til í skápnum þar líka.
Þetta er samt ákaflega rökrétt.
Björninn hefur ekki búið heima síðan í september og hefur því ýmislegt dót verið sett inn í herbergið hans, svona til bráðabirgða. Nú er björninn að flytja heim aftur og dótið þurfti að færa. Eitt af því sem þarna lá, var heil pakkning af WC-pappír sem ég keypti af birninum og félögum hans, sem eru að safna sér fyrir útskriftarferð í vor. Þessum pappír þurfti ég að koma fyrir uppi á baðskápnum og því lá það beint við að þrífa ofan af skápnum og loftið fyrir ofan hann fyrst. Svo fyrst ég var byrjuð á loftinu, kláraði ég það og tók veggina í leiðinni. Skápinn þurfti að þrífa líka, svo það var best að ljúka við það í leiðinni.
Inni í herbergi bjarnarins eru tvær eða þrjár ferðatöskur sem ég á eftir að færa. Verður gaman að vita hvort ég enda á því að taka til í geymslunni líka, eða fer bara í ferðalag með töskurnar !

This page is powered by Blogger. Isn't yours?