júlí 11, 2005
Síðasta vika
Mánudagur til föstudagur - vinna. Er farin að hanna og forrita viðmót á stóra verkefnið okkar og eins og alltaf gerist, koma upp fleiri spurningar en svarað er. Tókst samt að klára forsíðuna að mestu leyti á föstudag. Næstu síður verða vonandi auðveldari viðfangs.
Annað sem ég gerði í vikunni:
Pantaði utanlandsferð fyrir okkur hjónin
Sló lóðina mína
Aðstoðaði bóndann við að skrifa út reikninga
Fór á Sumarhátíð UÍA
Tók þátt í útihátíð Hallormsstaðabúa
Fór í næturfjallgöngu og sá sólina koma upp
Lá í sólbaði
Las Kalahari vélritunarskóla fyrir karlmenn
Byrjaði að lesa Móðir í hjáverkum
Nú er aftur kominn mánudagur og útlit fyrir annir í vinnunni og allt of gott veður til að vera innan dyra.
Annað sem ég gerði í vikunni:
Nú er aftur kominn mánudagur og útlit fyrir annir í vinnunni og allt of gott veður til að vera innan dyra.