júní 19, 2006
Aftur komin í vinnuna
Þær eru allt of fljótar að líða þessar helgar. Ég er að vinna í að hafa þetta 4:3 í staðinn fyrir 5:2, en það gengur frekar illa.
Gærdagurinn var bara góður, gott veður þrátt fyrir eina og eina dembu. Var heima að vinna í garðinum, þrífa grillið og fleira skemmtilegt. Merkilegt hvað öll verkefni eru miklu skemmtilegri utandyra í góðu veðri.
Litla fjölskyldan kom svo við og borðaði kvölmat á leið sinni heim úr smáfríi norðan heiða. Heiður Ösp var í essinu sínu, reifst við sjónvarpið, blaðraði við sjálfa sig í speglinum og varð eitt eyra þegar afi fór með hana út í garð og fuglasöngurinn var allt í kringum þau.
Reynitréð sem ég keypti í Sólskógum og var gróðursett í fyrradag, er núna hennar tré. Ef afi og amma búa í heilum skógi, er lágmark að eiga eitt tré, finnst ykkur ekki ?
Rannveig kom og færði mér bæklinga yfir sólarstrendur - nú á að fara að pæla.